|
Af Jakobi Tuma er það að frétta að hann hefur nú getað velt sér frá baki yfir á maga í tvo mánuði en sér sjálfum til mikillar gremju takmarkast ferðafrelsi hans á eigin spýtum við þessa einu hálfveltu. Það sem er gremjulegt fyrir mömmu er að þó J.T. snúi sér ávallt á magann um leið og hann getur, kemur það í hennar hlut að snúa honum við þegar hann verður pirraður. En það gerist oft ca 5 sek eftir að á magann er komið og svona gengur þetta allan sólahringinn (já í svefni líka)! Hann er líka nýbúinn að uppgötva tærnar sínar og elskar að tosa í þær og jafnvel smakka á þeim. Alltaf þegar ma eða pa skipta á bleyju er hann rosa góður að hjálpa til með því að halda tánum upp að andlitinu og finnst það rosa gaman. Það er búið að vera yndislegt haustveður undanfarið og við reynum að vera dugleg að fara út. Við erum í mömmuhóp með nokkrum jafnöldrum Jakobs og mömmum þeirra. Sá félagsskapur er reyndar efni í heila færslu. Ég passa ekkert agalega vel inn, á ekki skiptitösku frá Louis Vuitton eða slefþurrkur fra Burberry. Þetta blogg er rautt til stuðnings fólkinu í Burma. Ég kýs að segja Burma en ekki Myanmar en það er víst hápólitískt mál hvort maður segir og ég vil síður gera eins og herforingjastjórnin vill. Ég er reyndar ekki vel að mér í þessum málum en það er athyglisvert að fjölmiðlar í Svíþjóð segja ávallt Burma, BBC einnig en mér sýnast íslenskir fjölmiðlar alltaf tala um Myanmar. |
| Jóhanna September 28, 2007 11:18 AM PDT Já það er rétt, ég var einmitt dáldinn tíma að átta mig á hvaða land þetta væri. En gaman að þú skulir loksins blogga. Hlakka til að fara að lesa sögur af JT, einhverjar pólitískar pælingar eða fréttir af snobbvinkonum þínum í mömmuhópnum ;) | ||
| Tinna September 29, 2007 03:39 PM PDT Hæ Kolla mín já er sammála síðasta ræðumanni, að ég bíð spennt eftir færslum af hehe J.T vinkonurnar og politíkinni sem ég hélt þú hefðir engan tíma til að hugsa um lengur.... en Já sakna þín alltaf snúlla kveðja Tinna | ||
| Jóhanna September 29, 2007 05:48 PM PDT Maggý eignaðist 18, 5 marka strák kl rúmlega átta í kvöld (29.), munaði einum degi að hann kæmi á afmælisdaginn hans Jónasar Bjarka. Allt gekk vel :)Hann er 53 cm. | ||
| Kolla September 30, 2007 11:21 AM PDT Mamma: Frábærar fréttir! Tinna: Sakna þín líka | ||
| Ásdís Jóh September 30, 2007 12:49 PM PDT Jakob Tumi er ekkert smá mikil dúlla, ég kíki mjög reglulega á myndasíðuna :) Þið fáið líka mikið hrós fyrir að vera svona dugleg að hlaða inn myndum! Vonandi hafið þið það annars bara rosa gott í Stokkhólmi, lítur ekki út fyrir annað :) Ásdís Jóh | ||
| Harpa October 1, 2007 01:27 AM PDT Ótrúlega er Jakob Tumi heppinn!! Hann er með sömu skammstöfun (ef við sleppum föðurnafninu) og Justin Timberlake. JT og JT!! Framtíðin er björt :) | ||
| Leave a Comment: |