Entry: Hljóðmengun? Thursday, July 12, 2007



Aldrei þessu vant fór ég áðan með flokkaða sorpið okkar (glerkrukkur, áldósir og papppaílát) út í gáma (við erum að reyna að bæta okkur í flokkuninni).  Jæja, allt í einu heyri ég rosa fagnaðarlæti en samt í fjarska.  Maður er ýmsu vanur hérna á stúdentagörðunum en ég var ekki alveg að fatta hvað þetta gæti verið svona seint um kvöld.  Eftir smá hlustun fattaði ég að ég var að hlusta á tónleika hljómsveitarinnar Metallica.  Þeir standa einmitt yfir núna í augnablikinu á Stadion..sem er LANGT í burtu.  Veit ekki hversu marga kílómetra í burtu, en marga.

Jakob Tumi á 2. mánaða afmæli í dag. Héldum ekki sérstaklega upp á það :) en ég nota tækifærið og minni á myndasíðuna hans

   2 comments

mamma
July 14, 2007   06:37 AM PDT
 
Bróðir þinn hefði ekki haft á móti því að vera á þessum tónleikum ;)
Jóhanna, Steini og Sindri
August 9, 2007   01:56 PM PDT
 
Jiii gaman að skoða myndir af Jakobi Tuma, ekkert smá sætur og mannalegur. Hann er mjög blandaður af ykkur báðum. Og sá er búinn að upplifa ýmislegt, flugferð, bátsferð ofl. :) Kveðja frá okkur í Köben

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments