Entry: Lúxuslíf Monday, July 09, 2007



Nú erum við Andri búin að vera í nokkurn tíma bæði í einu í fæðingarorlofi.  Það er sko ekki leiðinlegt :)  Algjör lúxus að fá að vera öll heima og njóta þess að vera orðin þriggja manna fjölskylda.  Það gerir líka allt svo miklu auðveldara, eins og t.d. að sofa.  Ég vakna á nóttunni með reglulegu millibili til að láta Jakob Tuma tæma úr yfirfulla forðabúrinu sínu.  Svo á morgnana þegar Jakob Tumi er orðin alveg skelfilega glaðvakandi og eiturhress, en ég hins vegar að niðurlotum komin, þá tekur pabbi hans við.  Í morgun prófuðum við svo í fyrsta skipti að vera tilbúin með brjóstamjólk í pela svo Andri gat séð um að gefa morgunmat. 
Á morgun er Jakob að fara í myndatöku í sendiráðinu því hann þarf að fá sitt eigið vegabréf áður en við fljúgum til Þýskalands í lok mánaðarins.  Bara krúttlegt að eiga vegabréf með mynd af sér 8 vikna. 

Eins og ég hafi ekki verið nógu mikið dottin út úr þjóðmálaumræðunni á Íslandi þá hefur nú Múrinn lagt upp laupana.  Það þykir mér afar, afar leiðinlegt.  Í 7 ár hefur verið hægt að ganga að því vísu að á Múrnum mætti finna gáfulega og velskrifaða pistla um málefni líðandi stundar jafnt á Íslandi sem annars staðar í heiminum.  Þar var fjallað um stjórnmálaástand í öllum heimsins hornum en einnig mátti þar stundum finna skemmtilega kvikmyndarýni, fræðandi sögupistla og ýmislegt  fleira.  Eins og ég segi, grautfúlt að geta ekki notið þessara skrifa lengur.

   2 comments

Jóhanna
July 10, 2007   02:43 AM PDT
 
Það var mikið að það kom blogg. Ætti nú að vera tími til að blogga í þessu lúxuslífi ;) Annars veit ég að athyglin er öll á JT.

En já algjör spæling með þetta frábæra vefrit Múrinn.
Harpa
July 11, 2007   05:09 AM PDT
 
sammála síðasta ræðumanni -er nokkuð annað að gera í fæðingarorlofinu en blogga??? ;)


Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments