|
Við erum annars búin að fá fullt af æðislegjum kveðjum og gjöfum sem ættingjar og vinir hafa verið svo sætir að senda okkur alla leiðina hingað til Svíþjóðar. Bestu þakkir til ykkar allra og líka fyrir allar sætu kveðjurnar hérna á síðunni og á myndasíðunni. Svo ég segi smá fréttir af yfirlýstri taubleyjunotkun þá hefur hún kannski farið pínu rólega af stað en gengur vel. Ég nota helst bara taubleyjur en Andri er enn þá meira fyrir pappírsbleyjurnar. Svo eigum við líka of fáar og helst til stórar taubleyjur í augnablikinu en það stendur til bóta. Burt séð frá því að þær eru flestar of stórar þá virka þær bara rosa vel og eru ekkert erfiðari í notkun en pappírinn. Að vísu þurfum við að þvo nánast á hverjum degi en bleyjur eru nú minnsti hlutinn af því. |
| Magga June 1, 2007 12:54 AM PDT Hæ skvís! Mér finnst ég alveg hrikaleg sem hef ekkert látið heyra í mér. Okkur John langar rosalega til að kíkja til ykkar fljótlega, við erum bara búin að vera á fullu í flutningum o.fl. og verðum næstu daga/viku líka. En til hamingju alla vega enn og aftur og gaman að heyra að allt gengur vel! Jakob Tumi er alveg sætastur í heimi... Kram! | ||
| Steini í dk June 1, 2007 02:13 AM PDT Hæ hæ, enn og aftur til hamingju og líka með flotta nafnið. Vá ég dáist af þér að leggja í taubleyjunotkun, ég og Jóhanna notum bara þessar beint úr búðinni. | ||
| Leave a Comment: |