Endilega tjáið ykkur eins og þið getið.....


   
<< September 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30

Myndir af Jakobi Tuma
Verkfræðinemar um víða veröld

Ásdís Jó í Frakklandi
Asta i Lundi
Asdis Sveins i USA
Halli i Lundi
Gummi Simmason i Þyskalandi
Sigurgeir i Stokkholmi
Ingibjorn i Köben
Olga i Rvk
Jolli a Islandi
Raggi i Stokkholmi
Valla i USA
Bjorn Onundur i DK
Jon Gretar og Beta i Stokkholmi
Hörður Mar í Norge
Steini og Jóhanna í Köben
Dagný í Stokkhólmi
Kristveig í Stokkhólmi
Magga í Luleå
Stebbi i TŠby
Sveinbjorg i Stokkholmi
Heidrun i Stokkholmi

Austfirðingar

Systa min
Harpa Hrönn
Maggý sæta
Björt beib
Sigríður
Eygló Rut
Olga Kolbrun og Halldor

Vinir, kunningjar og skemmtileg blogg

Margrét Skólavía
Alma
Óli Njáll
Strumpur
Sverrir
Ása frænka
Vala i Lundi
Sissa i BNA
Sigga ’ Madr’d
Eva Dögg á Reyðarfirði



Fleira áhugavert

Murinn
UNICEF
Fjörðurinn fagri
Uvg
Í bíó
Amnesty ísland
Vir
IEEE
Alltumbíó
Gagnauga


Myndir


Kollu og Andra myndir
Tæland útskrifarferð
Ekvadormyndir
Free Site Counters
Free Counter




Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



Friday, February 01, 2008
Jakob Tumi æfir sig að labba

Jakob Tumi notar nýjar aðferðir til að komast leiðar sinnar. 

Posted at 02:45 am by kolbrun
comment 2

Sunday, October 28, 2007
JT skríður ÁFRAM.

Nú takmarkast ferðafrelsið ekki lengur eingöngu við afturábak stefnuna. Sem á sennilega ekki eftir að gera foreldrunum auðveldara lífið.

Posted at 10:40 am by kolbrun
comment 1

Wednesday, October 10, 2007
Foreldrahópurinn

Ég sagði um daginn að foreldragrúppan okkar væri efni í færslu út af fyrir sig.  Í gær fórum við í göngutúr og hádegismat með nokkrum mömmum og krílum úr hópnum.  Ungbarnaeftirlitið sem við erum í er á Östermalm þar sem fermetraverð fasteigna er það hæsta í Svíþjóð.  Mömmurnar eru soldið eftir því (þessar með Louis Vuitton skiptitöskurnar og burberry slefklútana).  Þær eru voðalega indælar en mér líður oft frekar utangarðs í samræðum.  Ég veit t.d. ekki hvernig er best að snúa sér í að leigja eyjur og lúxussnekkjur fyrir brúðkaup.  Veit ekki hvaða svítur eru bestar á 5 stjörnu hótelum Svíþjóðar.   Og hef ekki skroppið til Parísar eða annarra borga til að versla barnaföt.
Reyndar eru sumar þeirra meira í mína átt, versla á Blocket, eru ánægðar með að fá notað dót frá vinum og vandamönnum o.s.frv.  En aðrar já meira í einhverja aðra átt. 

Ég setti inn nokkrar myndir úr hádegismatnum á flickrsíðuna og hér má svo sjá Jakob Tuma í nýju hoppugræjunni sinni.

Posted at 02:30 am by kolbrun
comment 2

Monday, October 08, 2007
Heimsreisufarar

Gunnar Sveinn, litli bróðir minn, er lagður af stað í heimsreisu.  Hann og fjórir aðrir félagar hans úr MR ætla að ferðast um heiminn næstu mánuðina og er hægt að fylgjast með þeim hérna.

Posted at 08:23 am by kolbrun
Allir ad tja sig

Wednesday, October 03, 2007
Öppna förskolan

Við Jakob Tumi erum farin að venja komur okkar á öppna förskolan hérna á Lappis.  Þetta er alveg bráðsniðugt fyrirbæri.  Nokkurs konar leikskóli fyrir börn sem eru ekki á leikskóla.  Börnin fá að leika við önnur börn og foreldrarnir drekka kaffi og spjalla á meðan.  Gaman fyrir börnin og frábært fyrir foreldra í fæðingarorlofi (ath. hér er fæðingarorlofið nánast óendanlegt) að geta hitt aðra í sömu stöðu.  Sem sagt enn sem komið er er þetta meira fyrir mömmu þar sem JT notar leikföng bara sem nagdót (þ.e. eitthvað til að nudda góminn með og smakka á) og hefur meiri áhuga á tásunum sínum en öðrum börnum.  Andri vill meina að ég skemmti mér líka mun betur í ungbarnasundinu en JT... en strákarnir græða þá allavega skapbetri mömmu.  

Posted at 03:03 am by kolbrun
comment 1

Friday, September 28, 2007
Nýtt blogg!

Jæja ætli sé ekki kominn tími á smá blogg.

Af Jakobi Tuma er það að frétta að hann hefur nú getað velt sér frá baki yfir á maga í tvo mánuði en sér sjálfum til mikillar gremju takmarkast ferðafrelsi hans á eigin spýtum við þessa einu hálfveltu.  Það sem er gremjulegt fyrir mömmu er að þó J.T. snúi sér ávallt á magann um leið og hann getur, kemur það í hennar hlut að snúa honum við þegar hann verður pirraður.  En það gerist oft ca 5 sek eftir að á magann er komið og svona gengur þetta allan sólahringinn (já í svefni líka)!
Hann er líka nýbúinn að uppgötva tærnar sínar og elskar að tosa í þær og jafnvel smakka á þeim.  Alltaf þegar ma eða pa skipta á bleyju er hann rosa góður að hjálpa til með því að halda tánum upp að andlitinu og finnst það rosa gaman. 

Það er búið að vera yndislegt haustveður undanfarið og við reynum að vera dugleg að fara út.  Við erum í mömmuhóp með nokkrum jafnöldrum Jakobs og mömmum þeirra.  Sá félagsskapur er reyndar efni í heila færslu.  Ég passa ekkert agalega vel inn, á ekki skiptitösku frá Louis Vuitton eða slefþurrkur fra Burberry.

Þetta blogg er rautt til stuðnings fólkinu í Burma.  Ég kýs að segja Burma en ekki Myanmar en það er víst hápólitískt mál hvort maður segir og ég vil síður gera eins og herforingjastjórnin vill.  Ég er reyndar ekki vel að mér í þessum málum en það er athyglisvert að fjölmiðlar í Svíþjóð segja ávallt Burma, BBC einnig en mér sýnast íslenskir fjölmiðlar alltaf tala um Myanmar. 


Posted at 01:32 am by kolbrun
comment 6

Thursday, July 12, 2007
Hljóðmengun?

Aldrei þessu vant fór ég áðan með flokkaða sorpið okkar (glerkrukkur, áldósir og papppaílát) út í gáma (við erum að reyna að bæta okkur í flokkuninni).  Jæja, allt í einu heyri ég rosa fagnaðarlæti en samt í fjarska.  Maður er ýmsu vanur hérna á stúdentagörðunum en ég var ekki alveg að fatta hvað þetta gæti verið svona seint um kvöld.  Eftir smá hlustun fattaði ég að ég var að hlusta á tónleika hljómsveitarinnar Metallica.  Þeir standa einmitt yfir núna í augnablikinu á Stadion..sem er LANGT í burtu.  Veit ekki hversu marga kílómetra í burtu, en marga.

Jakob Tumi á 2. mánaða afmæli í dag. Héldum ekki sérstaklega upp á það :) en ég nota tækifærið og minni á myndasíðuna hans

Posted at 02:05 pm by kolbrun
comment 2

Monday, July 09, 2007
Lúxuslíf

Nú erum við Andri búin að vera í nokkurn tíma bæði í einu í fæðingarorlofi.  Það er sko ekki leiðinlegt :)  Algjör lúxus að fá að vera öll heima og njóta þess að vera orðin þriggja manna fjölskylda.  Það gerir líka allt svo miklu auðveldara, eins og t.d. að sofa.  Ég vakna á nóttunni með reglulegu millibili til að láta Jakob Tuma tæma úr yfirfulla forðabúrinu sínu.  Svo á morgnana þegar Jakob Tumi er orðin alveg skelfilega glaðvakandi og eiturhress, en ég hins vegar að niðurlotum komin, þá tekur pabbi hans við.  Í morgun prófuðum við svo í fyrsta skipti að vera tilbúin með brjóstamjólk í pela svo Andri gat séð um að gefa morgunmat. 
Á morgun er Jakob að fara í myndatöku í sendiráðinu því hann þarf að fá sitt eigið vegabréf áður en við fljúgum til Þýskalands í lok mánaðarins.  Bara krúttlegt að eiga vegabréf með mynd af sér 8 vikna. 

Eins og ég hafi ekki verið nógu mikið dottin út úr þjóðmálaumræðunni á Íslandi þá hefur nú Múrinn lagt upp laupana.  Það þykir mér afar, afar leiðinlegt.  Í 7 ár hefur verið hægt að ganga að því vísu að á Múrnum mætti finna gáfulega og velskrifaða pistla um málefni líðandi stundar jafnt á Íslandi sem annars staðar í heiminum.  Þar var fjallað um stjórnmálaástand í öllum heimsins hornum en einnig mátti þar stundum finna skemmtilega kvikmyndarýni, fræðandi sögupistla og ýmislegt  fleira.  Eins og ég segi, grautfúlt að geta ekki notið þessara skrifa lengur.

Posted at 05:29 am by kolbrun
comment 2

Monday, June 04, 2007
Sumarið komið

Já nú held ég (vona allavega) að sumarið sé í alvöru komið.  Í gær röltum við í gegnum skóginn til að fara í Prisextra í innkaupaleiðangur í rosa fínu veðri. Greyið Jakob var sennilega allt of dúðaður í vagninum.  Í dag fórum við svo í göngutúr niður á strönd og þar voru krakkarnir farnir að leika sér berrassaðir í vatninu.  Það er nú soldið í að Jakob verði nógu stór til að gera svoleiðis (þó hann sé rosa duglegur að stækka).  Því miður gleymdist myndavélin í þeim göngutúr. 
Mömmu til mikils ama tekur Jakob Tumi stundum upp á því að vera glaðvakandi á nóttunni.  Hann er ekkert endilega að gráta eða neitt bara liggur glaðvakandi í rúminu sínu og skoðar heiminn (sbr. mynd).  En mér tekst ómögulega að sofna á meðan hann er vakandi. 



Posted at 09:16 am by kolbrun
comment 3

Thursday, May 31, 2007
Fjölskyldulífið

Ætli sé ekki kominn tími til að setja inn smá fréttir af okkur eins og er búið að standa til lengi.  Nú er Jakob Tumi alveg að verða 3 vikna  og braggast rosa vel.  Andri er búinn að vera að vinna þessa viku og verður líka næstu en ætlar svo að taka sér 2 mánaða fæðingarorlof.   Í augnablikinu erum við sem sagt bara tvö heima á daginn að dúlla okkur...lífið er reyndar ekki mjög flókið, við leggjum okkur, gefum/fáum brjóst, skiptum á bleyjum, göngum frá þvotti og horfum á sjónvarpið.    Í dag fengum við reyndar rosalega skemmtilega heimsókn.  Þær Dagný og Kristveig komu færandi hendi með bæði gjafir og og ægilega fínan hádegismat sem þær framreiddu handa okkur.  Þær komu beint af meistaravörninni hennar Kristveigar sem gekk víst voða vel og óskum við Kristveigu innilega til hamingju með þennan stóra áfanga:).
Við erum annars búin að fá fullt af æðislegjum kveðjum og gjöfum sem ættingjar og vinir hafa verið svo sætir að senda okkur alla leiðina hingað til Svíþjóðar.  Bestu þakkir til ykkar allra og líka fyrir allar sætu kveðjurnar hérna á síðunni og á myndasíðunni. 

Svo ég segi smá fréttir af yfirlýstri taubleyjunotkun þá hefur hún kannski farið pínu rólega af stað en gengur vel.  Ég nota helst bara taubleyjur en Andri er enn þá meira fyrir pappírsbleyjurnar.  Svo eigum við líka of fáar og helst til stórar taubleyjur í augnablikinu en það stendur til bóta.  Burt séð frá því að þær eru flestar of stórar þá virka þær bara rosa vel og eru ekkert erfiðari í notkun en pappírinn.  Að vísu þurfum við að þvo nánast á hverjum degi en bleyjur eru nú minnsti hlutinn af því. 

Posted at 07:31 am by kolbrun
comment 3

Next Page