Endilega tjáið ykkur eins og þið getið.....


   
<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Myndir af Jakobi Tuma
Verkfræðinemar um víða veröld

Ásdís Jó í Frakklandi
Asta i Lundi
Asdis Sveins i USA
Halli i Lundi
Gummi Simmason i Þyskalandi
Sigurgeir i Stokkholmi
Ingibjorn i Köben
Olga i Rvk
Jolli a Islandi
Raggi i Stokkholmi
Valla i USA
Bjorn Onundur i DK
Jon Gretar og Beta i Stokkholmi
Hörður Mar í Norge
Steini og Jóhanna í Köben
Dagný í Stokkhólmi
Kristveig í Stokkhólmi
Magga í Luleå
Stebbi i TŠby
Sveinbjorg i Stokkholmi
Heidrun i Stokkholmi

Austfirðingar

Systa min
Harpa Hrönn
Maggý sæta
Björt beib
Sigríður
Eygló Rut
Olga Kolbrun og Halldor

Vinir, kunningjar og skemmtileg blogg

Margrét Skólavía
Alma
Óli Njáll
Strumpur
Sverrir
Ása frænka
Vala i Lundi
Sissa i BNA
Sigga ’ Madr’d
Eva Dögg á Reyðarfirði



Fleira áhugavert

Murinn
UNICEF
Fjörðurinn fagri
Uvg
Í bíó
Amnesty ísland
Vir
IEEE
Alltumbíó
Gagnauga


Myndir


Kollu og Andra myndir
Tæland útskrifarferð
Ekvadormyndir
Free Site Counters
Free Counter




Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



Saturday, May 19, 2007
Ekki lengur bara tvö :)

..heldur orðin þriggja manna fjölskylda síðan á laugardagsmorgun þann 12. maí kl. 9:33.  Eftir talsvert drama dagana áður, þar sem átti ýmist að setja okkur af stað eða ekki og litla krílið mældist voðalega lítið þá fórum við sjálf af stað á föstudagskvöldið og sonurinn var svo fæddur  hálfum sólarhring seinna.  Fæðingin gekk mjög vel, þó mér hafi reyndar fundist þetta rosalega erfitt á meðan á stóð.  Ótrúlegt samt hvað allt það erfiða er fljótt að gleymast.  Ljósmæðurnar (og allir sem hugsuðu um okkur á sjúkrahúsinu) voru alveg frábærar og bara allt í sambandi við fæðinguna :).  Það besta var samt að barnið okkar reyndist alveg fullkomið og bara alls ekkert lítið!  Hann hefur síðan bara orðið yndislegri og yndislegri með hverjum deginum.

Takk kærlega fyrir allar góðu kveðjurnar frá ykkur.  Það er hægt að skoða myndir af litla gaurnum hérna 

Posted at 02:21 pm by kolbrun
comment 20

Wednesday, May 09, 2007
Enn þá bara tvö

Nei fjölskyldan hefur ekki stækkað enn.  En nú er settur dagur runninn upp sama hvaða aðferð er beitt við útreikninga.  Skv. blæðingum hefði krílið átt að koma 29. apríl.  Skv. okkar útreikningum 7. maí, skv. 12v sónar var það 8. maí og 20v sónar 9. maí. 

Í gær fórum við í æfingarferð á sjúkrahúsið.  Eftir marga klukkutíma, skoðun og mónitor þá fengum við að fara heim aftur.  En eftir viðburðarríkan gærdag virðist krílið hafa skipt um skoðun og ætla að vera soldið lengur í bumbunni.  Greinilega voða notó þarna inni.  Á morgun förum við í vaxtarsónar og fáum að vita hvernig bumbubúanum gengur að stækka og fitna. 

Á morgun förum við líka í júróvisionpartý hjá Dagnýju og ég mun pottþétt eyða smá pening í að kjósa Eirík svona fyrst ég hef kost á því.  Vonandi bara að við komumst í úrslitin núna. 

Posted at 05:20 am by kolbrun
comment 9

Wednesday, April 25, 2007
26

Jamm ég er orðin 26 ára gömul..síðan í gær.  Afmælisdagurinn var voða skemmtilegur.  Reyndar var ég nú búin að taka forskot á sæluna því fyrstu afmælisgjafirnar fékk ég fyrir ca. mánuði síðan..en þær fólu í sér að tölvan mín varð helmingi betri en nokkru sinni fyrr.  Á miðnætti þann 23. apríl fékk ég svo enn eina glæsilega viðbót við tölvuna mína frá sæta kærastanum mínum, nefnilega voða fína vefmyndavél.  Auk þess fékk ég sléttujárn (alveg eins og ég var búin að óska mér) og miða í óperuna!  Og geggjað flott blóm og æðislegt kort :).

Sýningin sem við fórum að sjá í óperunni var á ensku og heitir The Rake's Progress.  Sýningin var bara mjög skemmtileg og söngvararnir stóðu sig mjög vel að mínu mati.  Hins vegar finnst mér alltaf skemmtilegast þegar ég þekki eitthvað af tónlistinni og þegar koma svona rosa flottar aríur sem maður fær næstum gæsahúð af.  En það var ekki þannig á þessari sýningu.  En mér fannst t.d. bæði sagan og sviðsmyndin skemmtileg. 

Krílið er núna orðið 38 vikna gamalt og má því alveg koma í heiminn.  Það má samt líka alveg vera svolítið lengur í bumbunni og vera duglegt að vaxa á meðan.  En það er a.m.k. svo sannarlega farið að styttast í að maður mæti. 


Posted at 02:46 am by kolbrun
comment 12

Thursday, April 12, 2007
Hverfið okkar

Meðan við Andri vorum í bíó í gærkvöldi var þetta að gerast á Lappis.  Ekki mjög traustvekjandi.  Síðasta sumar komst Lappis líka í fréttirnar eftir að stúlku hafði verið haldið fanginni í íbúð og henni misþyrmt.  Mér sem finnst þetta svo ágætt hverfi, í okkar hluta eru mest barnafjölskyldur og á korridorunum mikið af erlendum skiptinemum.  Maður þarf auðvitað að sætta sig við skrýtna stúdentasiði eins og öskrin klukkan 22:00 á þriðjudagskvöldum en það venst...ég er aðallega hissa á að fólk verði sjálft ekkert þreytt á að vera alltaf að öskra.  

Posted at 04:26 am by kolbrun
comment 4

Friday, April 06, 2007
Gleðilega páska!

Mikið er ljúft að það sé komið páskafrí.  Í gærkvöldi stoppaði varla dyrabjallan hjá okkur vegna straums af krúttlegum krökkum sem komu með páskakort (sbr. jólakort) og körfur og óskuðu okkur gleðilegra páska.  Tilgangurinn með heimsókninni var sem sagt að fá körfurnar fylltar af góðgæti.  Því miður þekktum við Andri ekkert til þessarar hefðar og vorum ekki undirbúin undir allar þessar heimsóknir.  Mér tókst að skrapa einhverju saman í fyrsta hópinn en þurfti svo að senda nokkra frekar leiða í burtu.  Mér með alla mömmuhormónana í botni fannst það soldið erfitt.

Í vikunni fórum við tvisvar sinnum í mónitor og einu sinni í sónar til að athuga flæðið í naflastrengnum og stöðuna á legvatninu.  Þetta kemur alltaf allt voða vel út.  Auk þess er krílið ógurlega fjörugt alltaf svo því virðist bara líða vel. 

Hafið það öll voðalega gott um páskana :)

Posted at 12:08 am by kolbrun
comment 5

Sunday, March 25, 2007
Upprisa

Andri endurlífgaði tölvuna mína svo að nú er hún meira en helmingi betri en áður :)..þvílík hamingja.  Helgin leið hratt að venju.  Stórviðburður helgarinnar mun hafa verið laugardagskvöldið en þá fórum við ásamt föngulegum hóp Íslendinga út að borða á Söder og svo á stórskemmtilega tónleika með írska tónlistarmanninum Damien Rice.

Veðrið er búið að vera yndislegt, algjör draumur að fá svona snemmbúið vor.
Það eina sem gengur ekki eins og draumur þessa stundina er verkefnið mitt.  Það silast heldur hægt áfram þegar það þyrfti helst að vera á fljúgandi siglingu

Posted at 11:53 pm by kolbrun
comment 3

Tuesday, March 20, 2007
Dánarfregnir

Það gekk ágætlega í vaxtarsónarnum í síðustu viku.  Krílið okkar er að vísu svolítið lítið "eftir aldri" en fyrir því virðast engar alvarlegar ástæður.  Allt er sem sagt eins og það á að vera svo þá ályktun má helst draga að barnið sé einfaldlega frekar nett útgáfa af barni.  Eða við vonum allavega innilega að það sé skýringin.

Tölvan mín er dáin í bili :(.  Hún hefur þjónað öllum sínum hlutverkum sem m.a. sjónvarp, sími, hljómflutningsræjur, upplýsingaveita, vinnuvél...o.s.frv. afar vel síðustu 2 árin og nokkra mánuði.  Reyndar hef ég verið algjörlega háð tölvunni minni og eytt óheyrilegum tíma með hana í fanginu...kannski ekki skrýtið að hún hafi gefist upp.  En þar til og ef við reynum endurlífganir þá verð ég hvorki á msn né skype (sorry systa). 

Annars virðist núna þreytutímabil mitt númer 2 á meðgöngunni gengið í garð.  Vekur upp minningar frá San Diego þegar ég sofnaði nánast standandi ef ég var ekki komin heim fyrir 8 á kvöldin.  Ég sem ætlaði að vera óhemjudugleg við að nýta næstu helgar í ferðir í bíó, óperuna, á tónleika og veitingastaði og allt það sem verður kannski ekki svo auðvelt að gera næstu mánuðina, sé núna fyrir mér endurtekningu á því þegar við fórum í leikhús í S.D. og ég stein, steinsvaf frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.  Greyið Andri fær ekki mikinn og ekki skemmtilegan félagsskap frá mér um þessar mundir. 

Posted at 06:15 am by kolbrun
comment 3

Thursday, March 15, 2007
Erfiður dagur

Hérna í byggingunni minni í Kista sem heitir "wireless@kth" og hýsir radio communication deildina og computer communication deildina eru samankomnir masters- og doktorsnemar og prófessorar af ótrúlega mörgum þjóðernum.  Við mastersnemarnir erum frá: Íslandi, Svíþjóð, Tyrklandi, Íran, Þýskalandi og Indlandi.  Einn frá hverju landi.  Doktorsnemarnir eru frá: Svíðjóð, Rúmeníu, Ítalíu, Afganistan, Kína, Mexíkó og Rússlandi.  Prófessorarnir eru frá Bandaríkjunum, Svíþjóð og e-u N-Afríku landi. Þetta finnst mér mjög svalt :)

"Besta vinkona" mín hérna í deildinni var í dag að flytja og verja meistaraverkefnið sitt og hafði beðið mig um að vera gagnrýnandi (opponent).  Þetta var ekki jafn auðvelt og ég hefði haldið þar sem í ljós kom að verkefnið var ekki mjög gott og skýrslan sjálf afar hraðvirknislega og illa unnin.  Það er alls ekki auðvelt að þurfa að skila inn skýrslu sem rakkar niður 7 mánaða starf einhvers sem þú þekkir vel og kannt vel við.  Auk þess þurfti að gefa einkunn fyrir hina ýmsu þætti og í raun hefði ég átt að gefa falleinkunn fyrir þá flesta.  Kynningin sjálf gekk vel fyrir sig og ég hélt mig við nokkuð auðveldar og almennar spurningar.  Skýrslunni minni fannst mér hins vegar erfitt að skila vinkonunni :(. 

Krílið okkar er búið að valda svolitlum áhyggjum undanfarið.  Á mánudaginn kom í ljós að legbotninn er farinn að hækka afar hægt (loksins þegar fólk er farið að hafa orð á því hvað bumban sé stór). Þess vegna erum við á leiðinni í vaxtarsónar klukkan 7 í fyrramálið!  Kannski af því við vissum af þesssum "vandræðum" fór okkur allt í einu að finnast fjörboltinn okkar ansi fjörlaus og í dag vorum við orðin svo stressuð yfir þessu hreyfingarleysi að við fengum að hitta ljósuna og heyra hjartsláttinn.  Það gekk vel og nú er ég búin að læra að drekka ískalt kók til að koma krílinu af stað í leikfimi.  Vonandi gengur svo allt vel í fyrramálið.

Posted at 06:48 am by kolbrun
comment 8

Friday, March 09, 2007
Mýs og menn

Ég er komin með voða morgunrútínu núna.  Ég vakna oftast fáránlega snemma (gegn vilja mínum) og þar sem ég endist hvort eð er ekki svo lengi sitjandi við skrifborðið mitt upp í Kista þá tek ég svona 1 til 2 klst á morgnanna í að stunda jóga, fara í sturtu og bera svo á mig olíur og smyrsl (til að forðast slit :)) og borða morgunmat yfir morgunfréttunum í sjónvarpinu.  Ein fréttin í morgun fjallaði um einhvern vírus í dýrum sem væri hættulegur fyrir óléttar konur.  Ég missti reyndar af fyrri hlutanum en hlustaði vel á ráðin sem vísindamennirnir gáfu óléttum konum til að forðast þennan vírus.  Látið mennina ykkar tæma músagildrurnar (GLÆTAN að ég gæti tæmt svoleiðis ólétt eða ekki!!) og reynið að sleppa því að fá ykkur húsdýr eins og hamstra eða ROTTUR á meðgöngunni!!!  Mér misheyrðist ekki...eða er nokkuð til eitthvað sætt lítið dýr sem heitir á sænsku eitthvað mjög líkt og råtta?  Hverjum dytti annars í hug að fá sér rottu sem húsdýr hvenær sem er á lífsleiðinni?  Ef þetta er virkilega tilfellið í Svíþjóð þá er ég flutt heim...vil ekki að villta húsrottan úr næstu íbúð rati heim til mín.

...að vísu rámar mig núna í reiða nágranna okkar í Botnahlíðinni, eftir að mýsnar sem bróðir minn safnaði sluppu úr búrinu sínu.   Kannski þetta hafi ekki verið svo fáránlegt ráð eftir allt.  Gunnar Sveinn getur allavega haft þessar ráðleggingar í huga þegar hann mun eiga von á barni. 

Posted at 12:47 am by kolbrun
comment 5

Tuesday, March 06, 2007
Vor og draumar.

Svei mer tha eg held ad osk min se ad raetast og vorid se ad koma :)  Markmidid er ad thad verdi ordid nogu heitt til ad pakka ulpunni adur en bumban verdur ordin svo stor ad eg geti ekki lengur rennt upp.  Held barasta ad thad muni nast!

Annars otrulegt hvad mann dreymir undarlega thegar madur er olettur.  I nott dreymdi mig reyndar bara Melodifestivalen (Eurovision i Svithjod) og mig dreymdi ad Sebastian myndi vinna a laugardaginn!  Eg held sko ekkert serstaklega med honum og finnst margir adrir liklegri til ad vinna svo thad verdur gaman ad sja hvernig fer :)


Posted at 07:47 am by kolbrun
comment 1

Previous Page Next Page